Bein útsending í kvöld

Mynd: Ásgrímur Ágústsson (19.02.2013)
Mynd: Ásgrímur Ágústsson (19.02.2013)


Leikur Bjarnarins og SA Víkinga verður sýndur beint í kvöld og verður hægt að horfa á hann í fundarherberginu í Skautahöllinni ef áhugasamir vilja koma saman og njóta þess í góðum félagsskap að horfa á leikinn.

Í frétt á ruv.is í dag kemur fram að RÚV mun senda út streymi Borgarholtsskóla frá leiknum en hann verður einnig sendur út á Sjónvarpsstöð SportTV en hún er aðgengileg á rás 17 í sjónvarpi Símans og 800 í sjónvarpi Vodafone.

Skjárinn í fundarberberginu í Skautahöllinni er tengdur og klár ef fólk hefur áhuga á að horfa á leikinn í góðum félagsskap.

Leikurinn hefst kl. 19.00.