C keppendur (3. og 4. hópur)

Við viljum biðja alla C keppendur að mæta í skautapilsi/kjól/keppnisfötum á æfingarnar fram að Vinamóti sem haldið verður um næstu helgi. Tímataflan og keppendalistinn eru á heimasíðunni okkar, kíkið endilega á það. Allir keppendur fá upplýsingablað í dag (mánudaginn 2. mars) með mætingatíma, tékklista og öðru tengdu keppni. Ef einhver kemst ekki á æfingu þann dag þá eru þessar upplýsingar hér undir lesa meira.

 

Upplýsingablað vegna Vinamóts 7. - 8. mars 2009 á Akureyri

Keppandi í: ___________________________________________________________

Föstudagurinn 6. mars: Dregið í keppnisröð í Skautahöllinni á Akureyri kl. 18 í fundarherberginu. Það er ekki skylda að mæta, ef maður mætir ekki þá dregur einhver annar fyrir mann.

Laugardagurinn 7. mars: Mæting fyrir 10 ára og yngri C stundvíslega kl. 07:50, mæta inn í klefa merktum SA og hitta þar þjálfara.
Mæting fyrir 12 ára og yngri C og 13 ára og yngri C drengir stundvíslega kl. 09:30, mæta inn í klefa merktum SA og hitta þar þjálfara.

Þegar keppendur eru búnir að keppa þá mega þeir fara úr skautunum og fara upp í stúku og horfa á þá sem eftir eru, þegar síðasti keppandi dagsins hefur lokið keppni þá skulu allir sem kepptu þann dag fara aftur í skauta og út á svellið þar sem verðlaunaafhending fer fram.
Ath. þeir sem ekki keppa þennan dag skulu endilega mæta og hvetja okkar "lið" ☺

Sunnudagurinn 8. mars: Mæting fyrir 8 ára og yngri C og 9 ára og yngri C drengir stundvíslega kl. 07:50, mæta inn í klefa merktum SA og hitta þar þjálfara.
Mæting fyrir 14 ára og yngri C stundvíslega kl. 08:15, mæta inn í klefa merktum SA og hitta þar þjálfara.

Þegar keppendur eru búnir að keppa þá mega þeir fara úr skautunum og fara upp í stúku og horfa á þá sem eftir eru, þegar síðasti keppandi dagsins hefur lokið keppni þá skulu allir sem kepptu þann dag fara aftur í skauta og út á svellið þar sem verðlaunaafhending fer fram.
Ath. þeir sem ekki keppa þennan dag skulu endilega mæta og hvetja okkar "lið" ☺

Foreldrar ath! Foreldrafélagið er með til sölu rósir, bangsa og lukkupakka til að henda inn á svellið eftir að skautari hefur lokið keppni. Það er ekki posi á staðnum þannig að munið að taka með pening ef þið viljið kaupa hjá þeim.

Tékklisti keppenda! - Það sem þarf að hafa í keppni

Skautar                                                                        ☺
Skautahlífar (plasthlífar)                                                   ☺
Keppniskjóll/samfestingur og skautasokkabuxur (stelpur)          ☺
Svartar buxur og skyrta/þröngur bolur (strákar)                      ☺
Flíspeysa/peysa til að hita upp í á ísnum (hettulaus)                ☺
Vettlingar                                                                      ☺
Skautasokkabuxur                                                           ☺
Spennur og teygjur í hár                                                   ☺
Íþróttaskór til að hita upp í                                                ☺
Hlý úlpa meðan beðið er og teppi                                        ☺
Vatnsbrúsi                                                                     ☺
                                
Það sem hafa þarf í huga þegar keppni er framundan:
o    Að vera úthvíldur og vel sofinn
o    Muna að borða hollan mat og drekka vel af vatni vikuna fyrir mót
o    Forðast atburði sem geta leitt til meiðsla
o    Nota þann tíma sem gefst í að slaka á
o    Fara reglulega í gegnum dansinn í huganum t.d. áður en farið er að sofa
o    Teygja LÉTT á á hverjum degi en styttra í einu en venjulega
o    Muna að hugsa á jákvæðum nótum