Fyrirhugað dómaranámskeið í íshokkí

Mynd: Sigurgeir Haraldsson
Mynd: Sigurgeir Haraldsson


Fyrirhugað er að halda dómaranámskeið í íshokkí í Skautahöllinni á Akureyri um komandi helgi, 24. og 25. ágúst. 

Reiknað er með að námskeiðið verði seinni part laugardags og fyrri part sunnudags, en nánari tímasetningar verða auglýstar síðar. 

Námskeiðið er gott tækifæri bæði fyrir karla og konur sem hafa áhuga á dómgæslu, sem og fyrir leikmenn almennt til að læra leikreglurnar.

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu og er ætlað þeim sem eru á meistaraflokksaldri.

Þau ykkar sem hafa áhuga hafi samband við Sigurgeir Haraldsson í s. 893 7506 eða í sighar15@gmail.com - Sigurgeir veitir nánari upplýsingar.