EM í krullu: Tap í lokaleiknum

Eftir frábæran sigur á Pólverjum í morgun var íslenska liðið í hörkubaráttu um sæti í B-deildinni, en náði því miður ekki að fylgja eftir þessum góða leik í morgun þegar efsta lið C-keppninnar lá fyrir okkar mönnum. Íslenska liðið mætti Liháum nú síðdegis og voru okkar menn hreinleg kjöldregnir, niðurstaðan 0-8 tap.

Þetta þýðir að Ísland endar í fjórða sæti af níu í C-keppninni, aðeins einum sigri frá því að komast í aukakeppni um sæti í B-deild. Í heild er þetta ágætur árangur miðað við væntingar. Pólverjar sigruðu, en Tyrkir og Litháar urðu jafnir í 2.-3. sæti og þurfa að leika aukaleik um það hvor þjóðin fer upp í B-flokk. Til gamans má geta þess að íslenska liðið sigraði bæði Pólverja og Tyrki í keppninni.

Það verður því áfram hlutskipti Íslands að spila í C-keppni Evrópumótsins í krull.