Félagsgjöldin á leið í loftið


Innan skamms birtast greiðsluseðlar fyrir félagsgjöldunum í heimabönkum skráðra félagsmanna.

Stjórn Skautafélagsins hvetur félagsmenn til að leggja sitt af mörkum fyrir félagsstarfið með því að greiða hið hóflega árgjald. Vakin er sérstök athygli á að þetta er valfrjáls greiðsla og hvorki dráttarvextir né innheimtuaðgerðir á dagskrá gagnvart þeim sem ekki greiða.

Unnið hefur verið að því að uppfæra félagatalið, taka út og bæta inn, þannig að ef þú hefur fengið rukkunn í heimabankann þinn án þess að ætla/vilja vera félagsmaður í Skautafélaginu, vinsamlega hafið þá samband við Ólöfu Björku Sigurðardóttur, stjórnarmann í SA, eða sendið tölvupóst á skautahollin@sasport.is.