Frítt á skauta - kynning á íshokkí og listhlaupi


Laugardaginn 31. ágúst og sunnudaginn 1. september verður ókeypis aðgangur í Skautahöllina á Akureyri í almenningstímunum. Laugardagurinn er helgaður íshokkí, en á sunnudag verður listhlaupskynning.

Á laugardag kl. 13-16 verða þjálfarar og leikmenn á svellinu og aðstoða alla sem vilja koma og prófa íshokkí. Allur búnaður verður til láns á staðnum.

Á sunnudag kl. 13-15 verður Listhlaupadeild SA með skráningardag þar sem allir eru velkomnir að koma og prófa og fá leiðsögn frá þjálfurum og reyndum skauturum. Núverandi iðkendur eiga einnig að mæta í Skautahöllina til skráningar fyrir æfingar vetrarins.

Ný æfingatafla fyrir allar deildir er komin á heimasíðuna - sjá hér (pdf-skjal).