Karfan er tóm.
Síðustu umferð bikarmóts Magga Finns lauk sl. mánudagskvöld. Það er skemmst frá því að segja að Garpar eru Bikarmeistara 2014. Garpar sigruðu Dollý í lokaumferðinni, 8 – 4. Í hinum leik kvöldsins sigruðu Víkingar, Ice Hunt, 6 – 1. Upplýsingar um úrslit og stöðu eru hér.
Krulludeildin er nú farin í jólafrí en skorara á alla, vana og óvana að mæta á Áramótamótið þann 29. desember kl. 19:00. Endilega látið vita hvort þið ætlið að mæta, annaðhvort á Facebook-siðu krulludeildar eða með því að hafa samband við nefndarmenn krulludeildarinnar.