Karfan er tóm.
Tveir af leikjum kvöldsins unnust með miklum mun, 9-1 en minni munur var í leik Riddara og Mammúta. Garpar eru komnir í efsta sætið með þrjá vinninga eftir sigur á Fífunum í kvöld en Víkingar eru þó enn eina ósigraða liðið, hafa unnið tvo leiki en eiga eftir frestaðan leik úr þriðju umferðinni. Fálkar hafa einnig tvo vinninga eins og Víkingar, en eftir fjóra leiki.
Úrslit kvöldsins:
Garpar - Fífurnar 9-1
Mammútar - Riddarar 4-6
Skytturnar - Fálkar 9-1
Næstu leikir fara fram miðvikudagskvöldið 17. nóvember en þá verða leiknir tveir frestaðir leikir úr þriðju umferð:
Braut 2: Riddarar - Skytturnar
Braut 5: Fífurnar - Víkingar
Ísumsjón: Riddarar og Skytturnar
Fimmta umferð fer síðan fram mánudagskvöldið 22. nóvember.