Kjöri á íþróttamanni SA lýst í dag


Í dag kl. 18.00 verður lýst kjöri á íþróttamanni Skautafélags Akureyrar 2012. Velunnurum félagsins er velkomið að vera viðstaddir af þessu tilefni.

Nú þegar hafa deildirnar þrjár útnefnt íþróttafólk ársins úr sínum röðum. Þetta eru þau Anna Sonja Ágústsdóttir og Ómar Smári Skúlason úr Hokkídeild, Hrafnhildur Ósk Birgisdóttir úr Listhlaupadeild og Jens Kristinn Gíslason úr Krulludeild. Eitt þessara fjögurra verður krýnt sem íþróttamaður Skautafélags Akureyrar 2012 og verður þar með í kjöri til íþróttamanns Akureyrar 2012, en því kjöri verður lýst miðvikudaginn 16. janúar.