Krulla Íslendingar á Nýja-Sjálandi að ári?

Heimsmeistaramót 50 ára og eldri fer fram hinum megin á hnettinum í lok apríl 2009.

Á aðalfundi Krulludeildarinnar á dögunum vakti Gísli Kristinsson, formaður Krullunefndar ÍSÍ, athygli á að Heimmeistaramót leikmanna 50 ára og eldri fer fram hinum megin á hnettinum á næsta ári, í Nýja-Sjálandi. Þátttaka í mótinu er sannkölluð heimsreisa ef af verður og þarf því að ákveða og skipuleggja með miklum fyrirvara. Gísli óskaði eftir því á fundinum að krullumenn sem aldur hafa til þátttöku og hafa áhuga á að fara myndu láta hann vita sem allra fyrst. Þessu er hér með komið á framfæri við eldri iðkendur innan deildarinnar. Netfang Gísla er gisli hjá] arkitektur.is og farsímanúmer hans er 821 5021.