Leikir helgarinnar

Um helgina fer fram einn leikur í Íslandsmóti meistaraflokks karla þegar SA-Jötnarnir taka á móti Birninum í Skautahöllinni á Akureyri kl. 17:30.  Jötnarnir komu á óvart í fyrsta leik mótsins með sigri á SR og það verður því forvitnilegt að fylgjast með þeim um helgina.  Bjarnarmenn eru að koma norður aðra helgina í röð og ætla sér væntanlega að krækja í einhver stig að þessu sinni, en þeir riðu ekki feitum hesti frá viðureign síðustu helgar gegn Víkingunum.Jötnarnir hafa verið við æfingar síðustu vikur og liðið styrkist með hverjum deginum.  Þeir munu fá 4 leikmenn lánaða frá Víkingunum líkt og reglur gera ráð fyrir en það er Josh Gribben sem ákveður fyrir leik hvaða leikmenn það verða.  Við viljum hvetja sem flesta til að mæta í höllina og veita Jötnunum stuðning í sínum fyrsta heimaleik.