Leikir og heimasíða

Í millitíðinni hefur eitt og annað verið um að vera í íshokkíinu.  Víkingar töpuðu fyrir SR-ingum 6 - 3 í fyrstu viðureign liðanna í síðustu viku, Ynjur unnu SR um helgina hér fyrir norðan og 3. flokkur keppti á móti fyrir sunnan um helgina og reið ekki feitum hesti frá þeim viðureignum.

Næsti leikur á dagskrá er núna á fimmtudaginn þegar Jötnar taka á móti SR hér í Skautahöllinni á Akureyri.