Miklir yfirburðir hjá 4. flokki

Mynd: Ásgrímur Ágústsson (20.01.2013)
Mynd: Ásgrímur Ágústsson (20.01.2013)


Helgina 8.-10. febrúar var 4. flokkur á fullu á helgarmóti í Egilshöllinni. Bæði SA-liðin unnu alla leiki sína og hefur SA mikla yfirburði í þessum flokki.

Skemmst er frá því að segja að SA-liðin unnu alla sína leiki og er SA með yfirburðastöðu í deildinni.

Úrslit leikja (sjá á vef ÍHÍ):

A-flokkur 

Björninn SA 2 - 3
SA SR 6 - 2
SR Björninn 1 - 4
SA Björninn 2 - 0
SR SA 1 - 8
Björninn SR 4 - 3  (3 - 3 )


B-flokkur

Björninn SA 1 - 2
SA Björninn 2 - 1
Björninn SA 0 - 1
SA Björninn 6 - 2
 
SA-liðin hafa ekki tapað leik í þessum flokki í vetur. Eins og venjulega hafði fréttaritari samband Söruh Smiley þjálfar og hafði hún eftirfarandi að segja um árangurinn á þessu helgarmóti:

"Allir leikmenn spiluðu vel og margir áttu þátt í markaskoruninni. Mig langar til að nefna sérstaklega Davíð Hafþórsson, sem er markvörður B-liðsins. Hann átti stórkostlega helgi í markinu og var framúrskarandi. Hann spilaði einn leik með A-liðinu þegar markvörður þess, Jakob Ernfelt Jóhannsson, gat ekki leikið vegna meiðsla. Hann hélt hreinu í þeim leik. Ég vil þakka öllum foreldrunum sem komu með og lögðu sitt af mörkum í ferðinni. Sérstaklega vil ég þakka Ara, sem var til aðstoðar á bekknum í öllum leikjum og stóð sig frábærlega í að hvetja krakkana."

Hér má sjá stöðuna í deildinni (á vef ÍHÍ).