Minningarmót um Magnús Finnsson

Minningarót um Magnús Finnsson verður haldið 30. og 31. janúar í skautahöllinni á Akureyri. “Old Boys” lið SA, SR og Bjarnarins munu mætast og spila um Magnúsarbikarinn. Þetta er í fjórða skiptið sem spilað er um bikarinn. 

Hér fyrir neðan er leikjaplanið.

Gert er ráð fyrir að spila 2x20 mínútur fljótandi tíma á föstudagskvöldinu, og á laugardeginum verður spilaður fljótandi tími, 20 + 10, leikhlé,(heflað) og svo 10 + 20.

 Föstudagur 30. janúar

21:15   SA- Björninn

22:10   SA-SR

23:05   SR-Björninn

Laugardagur 31. janúar

17:15   SA- SR

18:45   SR-Björninn

20:15   SA-Björninn

Verðlaunaafhending að loknum síðasta leik.

Stefnt er að því að fara út að borða saman að loknu móti, og svo gleði, gleði.