Nýtt námskeið hjá Listhlaupadeild

Listhlaupadeild Skautafélags Akureyrar kynnir nýtt námskeið í skautahlaupi. Námskeiðið hefst 26. október og stendur í 5 vikur en tímarnir verða á miðvikudögum kl. 20.20-21.05. Það er frítt að prufa þann 26. en verð fyrir allt námskeiðið er 7.500 kr. Allur búnaður er á staðnum en æskilegur klæðnaður eru íþróttaföt, vettlingar og húfa/buff undir hjálminn. Skráning og upplýsingar sendast á formadur@listhlaup.is.