Opnum um helgina


Skautahöllin á Akureyri verður opin fyrir almenning á föstudag, laugardag og sunnudag. Reglulegar æfingar að hefjast og tímataflan alveg að verða klár.

Opið verður á föstudag kl. 13-16, skautadiskó á föstudagskvöld kl. 19-21 (athugið breytingu frá því í fyrra) og á laugardag og sunnudag verður opið kl. 13-17. 

Undanfarnar vikur hafa staðið yfir æfingabúðir í listhlaupi og íshokkí, en nú fer að komast regla á hlutina og vetrarstarfið að hefjast (tengist því auðvitað að það gránaði í fjöll í morgun). Reglulegar æfingar skv. tímatöflu eru hafnar hjá Listhlaupadeild og hefjast hjá íshokkídeildinni á fimmtudaginn.