Sædís Heba með flottan árangur á Junior Grand Prix

Sædís Heba Guðmundsdóttir stóð sig vel á Junior Grand Prix í Riga í Lettlandi sem kláraðist í dag. Sædís fékk 86.08 stig og var í 31. sæti í heildarstigakeppninni sem er flottur árangur á hennar fyrsta Junior Grand Prix móti. Næsta verkefni hjá þessari efnilegu skautakonu er Junior Grand Prix í Gdansk í Póllandi sem fer fram í lok september.

Við óskum Sædísi til hamingju með flotta frumraun og góðrar ferðar heim!