Skautadiskó á föstudagskvöld

Mynd: Ásgrímur Ágústsson
Mynd: Ásgrímur Ágústsson

Föstudagskvöldið 26. júlí kl. 19.30-21.30 verður skautadiskó í Skautahöllinni á Akureyri.

Skautahöllin lifnaði aftur við í upphafi vikunnar eftir sumarfrí þegar Listhlaupadeildin hóf ægingabúðir og skautaskóla. Deildin ætlar jafnframt að bjóða almenningi upp á aðgang að Skautahöllinni með skautadiskóum þrjú næstu föstudagskvöld og almenningstímum á laugardeginum og sunnudeginum um verslunarmannahelgina - nánar um það í næstu viku.

En fyrsta skautadiskóið eftir sumarfrí verður semsagt föstudagskvöldið 26. júlí og stendur kl. 19.30-21.30.