Karfan er tóm.
Ný stjórn LSA var kosin á dögunum og hana skipa áfram: Hilda Jana Gísladóttir, Rut Hermannsdóttir, Hólmfríður Egilsson, Guðlaug Reynisdóttir. Nýjir í stjórn eru: Inga Margrét Skúladóttir, Bergsveinn Kristinsson og Helga Sigurjónsdóttir.
Í stjórn ÍSS voru m.a. kjörnar Sigríður Stefanía, áður mótstjóri LSA - í aðalstjórn og Kristín Þöll Þórsdóttir, fyrrv. gjaldkeri LSA í varastjórn.
Foreldrafélag LSA hefur líka skipt um í brúnni og bætast þær upplýsingar vonandi við hér á síðunni innan skamms.
Að auki eru líkur á að við fáum til starfa fulltrúa sem verður umsjónarmaður yngri flokka. En ennþá vantar okkur mótstjóra deildarinnar næsta vetur. Áhugasamir hafið samband við hildajana@gmail.com