Josh verður vonandi svona glaður eftir leik kvöldsins. Mynd Sigurgeir Haraldsson
Í kvöld kl. 19:00 verður stórleikur í höllinni þegar Bjarnarmenn koma í heimsókn. Í boði eru þrjú gríðarlega mikilvæg stig sem skipta munu sköpum í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni. Við verðum að vinnan annan af síðstu tveimur leikjunum, en Björninn verður að vinna báða og því er leikurinn í kvöld sínu mikilvægari fyrir þá. Það má því öllum vera ljóst að í kvöld verður hart barist og allt á suðupunkti.SA liðið er fullskipað fyrir kvöldið, fjórar línur, tveir möllar, Leibbi á bekknum og spilandi þjálfari. Þetta getur ekki klikkað.