Team Helgi vann Magga Finns mótið

Sigurliðið. Mynd: Sigurgeir Haraldsson
Sigurliðið. Mynd: Sigurgeir Haraldsson


Helgi Gunnlaugsson og félagar unnu þrjá leiki og gerði eitt jafntefli, fengu Magga Finns bikarinn eftir sigur í úrslitaleik gegn SA. Reyndar fengu þeir ekki rétta bikarinn, en það er önnur saga...

Minningarmótinu um Magnús E. Finnson lauk seint í gærkvöldi eftir að menn höfðu spilað á föstudagskvöld og svo áfram frá kl. 16 í gær og fram á kvöld. Að móti loknu var svo lokahóf þar sem afhent voru nokkur einstaklingsverðlaun. Reyndar voru ekki afhent verðlaun fyrir skemmtilegasta liðið, en miðað við stemninguna á lokahófinu hefðu þau verðlaun væntanlega fallið liði Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins í skaut.

Lokastaðan:

Röð Lið Stig
1. Team Helgi  7
2. SA 6
3. SHS 4
4. SR 3
5. Björninn 0


Úrslit leikja:

SA - SR 4-3
Björninn - Team Helgi  2-12
SR - SHS 5-6
SA - SHS 6-2
SR - Björninn 10-4
Team Helgi - SHS 2-0
SA - Björninn 8-2
SR - Team Helgi 3-3
Björninn - SHS 1-7
SA - Team Helgi 1-4


Á lokahófinu voru afhent nokkur verðlaun: 
Grófasti leikmaðurinn: Guðrún Blöndal, Team Helgi (eini keppandinn á mótinu sem náði að fella fjall).
Markahæstur: Hilmir Guðmundsson, Team Helgi
Mestu möguleikar á framförum: Guðjón Häsler, SA
Verðmætasti leikmaðurinn: Guðni, SHS

Á lokahófinu gaf Heiðar Ingi í Everest einnig brynju sem mótshaldarar máttu úthluta til leikmanns sem þótti þurfa á henni að halda. Eitthvað virðist fyrirliði sigurliðsins, Helgi Gunnlaugsson, hafa verið orðinn þreyttur eftir erfitt mót því það var hann sem fékk brynjuna.