Þrír sterkir leikmenn til SA

Skautafélag Akureyrar kynnir þrjá nýja leikmenn í lið SA fyrir komandi tímabil í Hertz-deildinni. Leikmennirnir eru landsliðskonurnar Saga Margrét Sigurðardóttir og Herborg Rut Geirsdóttir ásamt Kanadíska markmanninum Shawlee Gaudreault.

Sögu Margréti þarf vart að kynna en hún 18 ára varnarmaður og var einn besti leikmaður Hertz-deildarinnra tímabilið 2020-2021 þegar hún spilaði síðast með SA. Saga spilaði stórt hlutverk með sterku liði Södertälje SK í sænsku 1. deildinni á síðasta tímabili en snýr nú aftur í heimaklúbbinn sinn SA. Herborg Geirsdóttir er 21 árs framherji en hún byrjaði sinn hokkíferil í SA en flutti ung til Noregs með fjölskyldu sinni og spilaði þar lengst af með Sparta Sarpsborg. Herborg fór þaðan til Troja/Ljungby í Svíþjóð þar sem hún spilaði tvö tímabil í sænsku 1. deildinni en á síðasta tímabili kom hún til Íslands og spilaði með Fjölni. Herborg snýr nú aftur til SA eftir langt hlé en það verður virkilega spennandi að sjá þennan mögnuðu stúlku aftur í SA treyjunni. Þá hefur félagið gert samning við Shawlee Gaudreault en hún 26 ára markmarkmaður frá Kanada. Shawlee spilaði síðast með Ottawa Lady Senators í PWHL deildinni í Kanada en tók sér hlé frá leiknum en dregur nú fram skautana aftur til þess að taka slaginn með SA. Shawlee er ekki bara frábær markaður heldur líka mjög reyndur þjálfari og mun hún starfa fyrir hokkídeildina við þjálfun yngri flokka og markmanna næsta vetur.

„Leikmennirnir eru frábær viðbót fyrir okkur og fylla vel í þær leikmannastöður sem fráfarandi leikmenn skilja eftir sig. Það er mikilvægt fyrir liðið að fá inn leikmenn sem hafa svona mikla alþjóðlega reynslu en þær eiga eftir að leiða og setja fordæmi fyrir stóran hóp mjög ungra en efnilegra SA leikmanna sem eru í hraðri framþróun“ segir aðalþjálfari SA hann Sami Lehtinen.

Við bjóðum leikmennina velkomna til SA og hlökkum til að sjá þá á ísnum. #viðelskumleikinn