Úrslit úr innanfélagsmóti í íshokkí


Um liðna helgi fór fram annað innanfélagsmótið í íshokkí á þessu ári.

3-4-5A deildin
Úrslit leikja:
Svart - Grænt liðið 2-1
Appelsínugult - Svart 4-2
Appelsínugult - Grænt 4-2

Appelsínugula liðið er með forystu í deildinni, hefur sex stig, en Svarta liðið og Græna liðið eru jöfn með þrjú stig.

Markahæstir um þessa helgi:
Axel Snær Orongan, Appelsínugult, 4 mörk
Atli Þór Sveinsson, Appelsinugult, 3 stoðsendingar
Heiðar Örn Kristveigarson, Grænt, 2 mörk, 1 stoðsending

5B-6-7 deildin
Úrslit leikja:
Sart - Gænt 2-2
Apelsínugult 3- Svart 0
Appelsínugult 2 - Grænt 1

Appelsínugula liðið er með forystu, hefur sex stig, Græna liðið hefur fjögur og Svarta liðið tvö.

Fjórir leikmenn skoruðu tvö mörk um helgina: Alex Máni Sveinsson, Berglind Rós Leifsdóttir, Dagur Freyr Jónasson og Leonard Birgir Stefánsson.

6B-7 deildin
Bláa liðið, Gráa liðið og Hvíta liðið léku þrjá spennandi leiki. Mörg glæsileg mörk voru skoruð og líka oft frábærar markvörslur.