Vorfjarnám 2013: Þjálfaramenntun 1. stigs ÍSÍ


Vorfjarnám 1. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 11. febrúar nk. og tekur það átta vikur. Um er að ræða samtals 60 kennslustunda nám og er þátttökugjald kr. 25.000,-

Námið er almennur hluti þjálfaramenntunar ÍSÍ og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Það jafngildir áfanganum ÍÞF 1024 sem kenndur er í framhaldsskólum landsins. Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000 og þarf henni að vera lokið fyrir fimmtudaginn 7. febrúar. Með skráningu þarf að fylgja fullt nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer. Rétt til þáttötku hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi.

Metþátttaka var í sumarfjarnámi ÍSÍ 2012 þar sem um 40 þjálfarar kláruðu 1. stigs alm. hluta.

Allar nánari upplýsingar um fjarnámið og aðra þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is.