Afhending HUMMEL GALLANNA

Þeir sem eiga eftir að sækja galla athugið að María Stefáns, gsm-8614803 er með gallana heima hjá sér í Kjarrlundi 3, vinsamlegast sækið sem fyrst. Einnig eru til gallar í flestum stærðum ennþá fyrir þá sem ekki voru búnir að panta, en þó lítið í sumum. verð pr. galla 6500,-                 Jólakveðjur    Stjórn Foreldrafélagsins  (O:

Jólakaffi

Okkur hjá Listhlaupadeild vantar aðstoð við að selja jólakaffið sem við vorum með til sölu á jólasýningunni.:-)  Verðið er 1500 krónur á pakkninguna og eru 2 pakkar í pakkningunni. áhugasamir hafi samband við Allý í síma 8955804.

Dansinn

Minni á síðasta tímann fyrir áramót í dansinum á laugardaginn

Vel heppnuð jólasýning!

Ég vil þakka öllum sem tóku þátt í undirbúningi jólasýningarinnar okkar sem haldin var í gær. Allir iðkendur stóðu sig með mikilli prýði og sýndu það og sönnuðu hversu flott og stór deild við erum! Ég vil óska öllum gleðilegra jóla og hlakka til að sjá alla á nýja árinu!

Kveðja Helga Margrét yfirþjálfari 

Æfingar hjá 4., 5. og 6. hóp

Hér undir lesa meira er að finna töflu yfir æfingar hjá 4., 5. og 6. hóp í jólafríinu. Hjá öðrum flokkum er jólafrí til 2. janúar en þá byrja aftur æfingar samkvæmt tímatöflu.

Litlu-Jóla-Skauta-Ball

Fimmtudaginn 20. des. verða litlujólin á svellinu fyrir 5., 6., 7. og byrjendur frá kl. 16 til 18. Allir að mæta með skauta og góða JÓLA skapið. Jólasveinnin mætir á svæðið (veit ekki með Rúdolf ??)

Eftir leik kvenna og 3.flokks ca. 21,00 til 23,00 verður svo jólavídeó-kvöld fyrir 3. og 4.fl. í fundarherberginu með Denna með léttum veitingum ( mappisín+ !!!)

Jólasýningin Jólaævintýri Gosa

Minnum alla áhugasama á Jólasýningu listhlaupadeildarinnar Jólaævintýri Gosa. Sýningin hefst kl. 18 á morgun, miðvikudaginn 19. des. Aðgangseyrir 750 kr. fyrir 12 ára og eldri (frítt fyrir börn yngri en 12 ára).

Dagatal 2008 og sala á dvd með jólasýningunni

Á morgun miðvikudag munum við verða í hléi upp í fundarherbergi með pöntunarlista fyrir þá sem vilja eignast jólasýninguna á DVD. Verður hún seld á kr: 1000. Einnig munum við taka við pöntunum í dagatal Listhlaupadeildar (einnig til sölu á staðnum)

Svo mun Kristín verða með flesta þá mynddiska sem á eftir að dreifa. 

 Kveðja Stjórn Listhlaupadeildar

Búningar hjá 1. og 2. hópi

Sjá lesa meira!

Breyttir æfingatímar!

Sjá lesa meira!