Samherjastyrkur - þakkir.
Í gær veitti útgerðarfyrirtækið Samherji á Akureyri styrki til ýmissa samfélagsverkefna á Eyjafjarðarsvæðinu samtals upp á 75 milljónir króna. Flestir styrkirnir eru gagngert veittir til að efla barna- og unglingastarf í íþrótta- og æskulýðsfélögum á Eyjafjarðarsvæðinu og er þetta þriðja árið í röð sem Samherji veitir þessa styrki.
Skautafélag Akureyrar hefur notið þessa framlags og gær tók undirritaður við styrkloforði samtals að upphæð kr. 3,2millj. Styrkurinn er tvískiptur því annars vegar er um að ræða kr. 2.500.000.- til barna og unglingastarfs sem gagngert er notað til þess að greiða niður æfingagjöld barna og unglinga 16 ára og yngri. Skautafélagið hefur haft þann háttinn á undanfarin tvö ár að útdeila styrknum haustið eftir veitingu og deila honum jafnt til iðkennda bæði listhlaupa- og hokkídeildar til lækkunar á æfingagjöldum.
Hins vegar var svo um að ræða kr. 700.000.- sem sérstaklega eru ætlaðar meistaraflokkum félagsins í íshokkí.