S.A. vann!!!

S.A. vann leikinn gegn S.R. 6-5 í laugardalnum í kvöld. Leikiurinn var ágætis skemmtun á að horfa, og var hann prúðmannlega spilaður að hálfu beggja liða. S.R. mættu þó hálf vængbrotnir til leiks því í liðið vantaði "´Tékkann", Trausta markmann, Bigga markmann. Í seinni part fyrstu lotu misstu þeir svo fyrirliðann Ingvar í meiðsli varð hann frá að hverfa. Í staðinn fyrir markmennina var ungur markmaður að nafni Aron notaður og stóð hann sig með prýði. S.A mætti með sitt sterkasta lið og þegar hugarfarið er rétt á ekkert lið í deildinni roð í lið S.A. Þeir sem skoruði fyrir S.A. voru, Bjössi með 3, Clark með 2, og Jan með 1. S.A. spilar næst í janúar og mun frétt koma um það þá:) ÁFRAM S.A.!!!!

Jólaopnun Skautahallar

Jóladagskrá í Skautahöllinni

Mánudagur 20. des fimmtudagsins

23. des er opið frá kl. 11 - 17

Aðfangadagur LOKAÐ

Jóladagur LOKAÐ

26. des, annan í jólum, opið frá kl. 13 - 17

Mánudaginn 27. des - fimmtudagsins

.

30. des er opið frá kl. 11 17

Gamlársdagur LOKAÐ

Nýársdagur LOKAÐ

Sunnud 2. jan opið frá 13 - 17

Mánudag 3. jan opið frá 11-15

S.A. vs S.R.

Laugardaginn 18 des. mun S.A. sækja S.R. heim og spila þar einn leik. S.A. mun mæta með fullt lið og heyrst hefur að enginn annar en Jón Ingi Hallgrímsson hafi flúið danaveldi til þess eins að spila þennan leik. S.R. munu mæta með hálf vængbrotið lið því Trausti markamaður ,"Tékkinn", Þórhallur verða í leikbanni og Biggi markverja er með flensu. Engu að síður er búist við hörkuleik og við mælum með að fólk mæti í laugardalinn kl 19:00 og sjái þennan leik. ÁFRAM S.A.!!!

Íshokkíkona og Íshokkímaður ársins

Íshokkísamband Íslands útnefndi í dag Önnu Sonju Ágústsdóttur og Jónas Breka Magnússon íshokkíkonu og íshokkímann ársins

Jólasýning listhlaupadeildar

Jólasýning Listhlaupadeildar Skautafélags Akureyrar í ár, verður jólaævintýri H.C. Andersens:

Litla stúlkan með eldspýturnar

sunnudaginn 19. desember kl. 17:00

í

Skautahöllinni á Akureyri

Aðgangur 500 kr fyrir fullorðna

frítt fyrir 12 ára og yngri

Jólasýning listhlaupadeildar

Jólasýning Listhlaupadeildar Skautafélags Akureyrar í ár, verður jólaævintýri H.C. Andersens:

Litla stúlkan með eldspýturnar

sunnudaginn 19. desember kl. 17:00

í

Skautahöllinni á Akureyri

Aðgangur 500 kr fyrir fullorðna

frítt fyrir 12 ára og yngri

Ágætis afþreying

Já þetta er ágætis leikur.http://www.mousebreaker.com/games/icehockey/play.php

Landsliðsfréttir-Tryout

Um helgina verður landsliðsúrtak u20 landsliðsins sem mun fara til Mexíkó 10. janúar. Liðið mun þar spila í 3. riðli þar sem þess bíður mikið verk að vinna sig aftur uppí 2. riðil þar sem það á heima. Mun liðið etja kappi við löndin, Mexíkó, Búlgaríu, Nýja Sjálandi, Suður Afríku og Tyrkland. Ráðinn hefur verið þjálfari til verksins og heytir hann Owe Holmberg og kemur frá Nyköping í Svíþjóð.

Staðan í deildinni!

Staðan í deildinni er sú að S.R. er með 11 stig, Narfi er með 10 stig, S.A. er með 9 stig, og Björninn rekur lestina með 4 stig. S.A. spilar næst á móti S.R. 18 des. í laugardalnum. Við hvetjum alla norðlendinga sem búsettir eru fyrir sunnan að mæta og styðja sína menn. ÁFRAM S.A.!!!!

Narfi vann seinni leikinn!!

Narfi vann verðskuldaðann sigur 3-4 á móti Birninum í seinni leik liðanna. Björninn byrjaði fyrstu lotuna betur og vann hana 2-0. Í annari lotu tókst Narfamönnum að minnka muninn, og náðu að skora 2 mörk gegn 1 marki Bjarnarmanna. Í 3 lotu tókst svo honum Elvari "járnbrautarlest" að skora sigurmarkið á 16 mínutu. Til hamingju með leikina strákar!