3. leikur á morgun í Egilshöllinni

Lurkurinn í miklum ham.  Ljósmynd Sigurgeir Haraldsson
Lurkurinn í miklum ham. Ljósmynd Sigurgeir Haraldsson
Á morgun kl. 14:00 mætast SA og Björninn í þriðju viðureign liðanna um Íslandsmeistaratitilinn 2010.  Leikurinn fer fram í Egilhöllinni í Grafarvogi og aldrei þessu vant þá verður leikurinn sýndur beint á RÚV.  Það verður án efa mikil stemning í höllinni því gera má ráð fyrir því að stuðningsmenn Bjarnarins reyni að fylla húsið enda glórulaust að gera eitthvað annað á sunnudegi kl. 14:00 en að mæta á hokkíleik.Keppnin hefur farið af stað með miklum látum, liðin eru jöfn að stigum og styrkleika ef marka má fyrstu tvær viðureignirnar en nú fer að reyna enn frekar á leikmenn, á andlegu hliðina ekki síður en á þá líkamlegu.  Að venju erum við nokkuð borubrattir norðanmenn og mætum dýrvitlausir til leiks.  Liðið er komið suður, gistir á lúxushótelinu Cabin næstu tvær nætur, og markmið ferðarinnar er einfalt -  að landa Íslandsmeistraratitli.