4. flokkur með silfur á Iceland Ice Hockey Cup

4. flokkur Skautafélags Akureyrar lenti í öðru sæti á Iceland Ice Hockey Cup sem fram fór í Laugardal um helgina. Liðið vann alla leiki sína í riðlinum og undanúrslitum en tapaði í spennandi og vel spiluðum úrslitaleik gegn Norska liðinu Hasle/Loren. 

Úrslit leikjanna hjá SA:

Riðlakeppni:

SA - Björninn 10-0

SA - SR 5-0

SA - Hasle/Loren 3-2

Undanúrslit:

SA - Björninn 7-1

Úrslit:

SA - Hasle/Loren 4-8

Í lok móts voru bestu leikmenn liðanna og mótsins heiðraðir en Heiðar Gauti Jóhannsson var valin mikilvægasti leikmaður SA á mótinu og Dagur Freyr Jónasson var valin besti varnarmaður mótsins.