Að loknum Reykjavíkurleikum

Stelpurnar okkar í stúlknaflokki og Unglingaflokki stóðu sig allar gríðarlega vel á leikunum þó ekki höfum við átt keppenda í verðlaunasætum í þessum flokkum. 

Marta María hafnaði í 4 sæti í stúlknaflokki hæst Íslendinganna. Aldís Kara hafnaði í 6. sæti, Rebekka Rós í 9. sæti og Ásdís Arna í 13. sæti.

Emilía Rós hafnaði í 6 sæti önnur af Íslendingunum og Elísabet Ingibjörg (Gugga) í 17 sæti.

Þetta voru skemmtilegir leikar og gaman fyrir stelpurnar að fá að etja kappi við alla þessa flottu erlendu skautara.