Aðalfundur foreldrafélags íshokkídeildar 25. september

Aðalfundur foreldrafélags íshokkídeildar SA verður 25. september n.k. kl.20. Fundurinn verður haldinn í fundarherberginu í skautahöllinni. Efni: Venjulega aðalfundarstörf- kosið um lagabreytingu Hvetjum sem flesta til að mæta á fundinn þar sem verður farið yfir síðasta vetur og hvað er framundan í vetur. Einnig hvetjum við þá sem eru áhugasamir um að bjóða sig fram í stjórn foreldrafélagsins.

Hlökkum til að sjá ykkur Stjórn foreldrafélags íshokkídeildar SA