Aðalfundur listhlaupadeildarinnar

Aðalfundur Listhlaupadeildar Skautafélags Akureyrar/LSA 2019

Verður haldinn miðvikudaginn 8. maí nk. kl. 20.00 í fundarherbergi skautahallarinnar.

Venjuleg aðalfundarstörf:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla um starfsemi deildarinnar á liðnu ári
  3. Skýrsla um fjárhag deildarinnar og endurskoðaðir reikningar lagðir fram
  4. Kosin deildarstjórn og tveir varamenn
  5. Önnur mál er fram kunna að koma

Óskað hefur verið  eftir nýjum fulltrúum í stjórn og hafa þrír þegar boðið sig fram. Þeir aðrir sem hafa hug á því að bjóða sig fram í stjórnarsetu hjá LSA eru beðnir um að senda póst á sitjandi formann á formadur@listhlaup.is fyrir 5. maí nk.