Æfingaferð SA stúlkna til Reykjavíkur vegna Vetrarmóts

Um næstu helgi fer fram Vetrarmót ÍSS í Egilshöll í Reykjavík. Til að undirbúa sig fyrir mótið munu A og B keppendur LSA stunda æfingar í SR höllinni í Laugardalnum næstu vikuna. Alls eru 17 keppendur frá SA skráðir til leiks á Vetrarmótinu. Við óskum þeim góðs gengis í æfingum fyrir mótið og á mótinu sjálfu.