Akureyrarmót 2016

Akureyrarmót Listhlaupadeildar 2016 fór fram síðast liðinn sunnudag, þann 8. janúar. 
Þar tóku nánast allir okkar iðkendur í öllum keppnisflokkum deildarinnar þátt. Í lok móts voru keppendur verðlaunaðir með verðlaunabikurum enda stóðu sig allir með stakri prýði. 

Akureyrarmeistari 2016 var krýndur í lok móts og líkt og í fyrra hlaut Emilía Rós Ómarsdóttir titilinn. 

Við óskum keppendum öllum til hamingju með árangurinn og hlökkum til að fylgjast með afrekum þeirra á nýju ári.