Akureyrarmótið: 2. umferð

Frestaður leikur úr fyrstu umferðinni á milli Mammúta og Skyttanna var leikinn sl. miðvikudagskvöld. Þar fóru Mammútar með sigur, 6-3.

Önnur umferðin hefst í kvöld með þremur leikjum, en leik Garpa og Fífanna er frestað þar sem liðsmenn Garpa spila þessa dagana krullu í Tårnby þar sem C-keppni Evrópumótsins fer fram. Búast má við að dagsetningar á úrslitaleikjum í Akureyrarmótinu sem settar voru fram í upphaflegri leikjadagskrá (excel-skjal) muni riðlast eitthvað vegna frestaðra leikja hjá Görpum.

Leikir kvöldsins:
Braut 2: Fálkar - Skytturnar
Braut 3: Svarta gengið - Mammútar
Braut 4: Víkingar - Ís-lendingar

Leikjadagskrá, úrslit og fleira í excel-skjali hér.