Akureyrarmótið: Fífurnar á sigurbraut

Fífurnar hafa unnið fyrstu þrjá leiki sína í mótinu.

Fjórða umferð Akureyrarmótsins fór fram í kvöld. Fífurnar unnu sinn þriðja leik á mótinu og tróna á toppnum en ásamt þeim eru Riddarar einnig taplausir, hafa unnið tvo leiki en eiga frestaðan leik úr fyrstu umferðinni.

Úrslit kvöldsins:

Víkingar - Fálkar  6-5
Riddarar - Garpar  7-6
Mammútar - Fífurnar  3-6

Fimmta umferð fer fram mánudagskvöldið 11. október en þá leika Garpar-Fífurnar, Fálkar-Mammútar og Riddarar-Víkingar.