Akureyrarmótið: Fífurnar efstar með tvo sigra

Önnur umferð Akureyrarmótsins var leikin í kvöld.

Úrslit kvöldsins:

Garpar - Mammútar  2-8
Fífurnar - Víkingar  5-3
Fálkar - Riddarar  3-6

Riddarar þurftu aukaumferð til að knýja fram sigur í jöfnum leik gegn Fálkunum þar sem þeim tókst að jafna 3-3 í sjöttu umferðinni og stela svo þremur stigum í aukaumferðinni. Fífurnar hafa unnið báða leiki sína til þessa en auk þeirra eru Riddarar og Mammútar einnig taplausir, hafa þó aðeins leikið einn leik því leik þessara liða úr fyrstu umferðinni var frestað.

Næsta umferð verður miðvikudagskvöldið 6. október. Þá eigast við Víkingar-Fálkar, Riddarar-Garpar, Mammútar-Fífurnar.