Akureyrarmótið í krullu - skráning liða


Skráningu lýkur sunnudaginn 23. september. Skráning fer fram í gegnum skráningarform á netinu.

Eins og áður hefur komið fram hér hefst Akureyrarmótið í krullu mánudagskvöldið 24. september. Keppnisfyrirkomulag fer eftir fjölda liða, líklegast er að annað hvort leiki allir við alla eða þá að skipt verði í tvo riðla og síðan leikið til úrslita.

Sett hefur verið upp einfalt skráningarform á netinu þar sem hægt er að skrá heil lið sem tilbúin eru til leiks, lið sem vatnar leikmenn eða leikmenn sem vantar lið. Við munum reyna að aðstoða við að fylla í lið og finna lið.

Skráningarsíða - smellið hér.

Úr leik Víkinga og Fálka á Íslandsmótinu í krullu 2012. Mynd: Ásgrímur Ágústsson.