Akureyrarmótið í krullu: Ekkert lið taplaust

Fífurnar unnu Akureyrarmótið 2010.
Fífurnar unnu Akureyrarmótið 2010.


Önnur umferð Akureyrarmótsins í krullu fór fram í Skautahöllinni á Akureyri í kvöld, mánudagskvöldið 1. október.

Úrslit kvölsdins
Team Tårnby - Garpar  4-10
Urtur - Fífurnar  9-8 (eftir aukaumferð)
Mammútar - Bragðarefir  7-8

Það stefnir í spennandi síðari hluta móts því eftir úrslitin í kvöld er ekkert lið taplaust. Fimm af liðunum sex hafa tapað einum leik, eitt hefur tapað tveimur.

Þriðja umferð mótsins verður leikin eftir viku, mánudagskvöldið 8. október. Einn leikur úr þeirri umferð hefur reyndar þegar farið fram, en leik Garpa og Mammúta var flýtt vegna Tyrklandsferðar Mammúta. Þeir sigruðu Garpa 8-2 í þeim leik.

Leikir 8. október:
Braut 2: Bragðarefir - Urtur
Braut 4: Fífurnar - Team Tårnby
Ísumsjón: Urtur og Team Tårnby 

Leikjadagskrá og úrslit (excel-skjal)