Árshátíð 2016 - takið daginn frá!

Árshátíð Skautafélags Akureyrar 2016 verður haldin miðvikudaginn 23. mars (daginn fyrir skírdag) í Golfskálanum. Stefnt er á það að allar deildir félagsins fjölmenni á árshátíðina og leggi sitt að mörkum í skipulagningu dagskrár.  Nú koma allir til þess að skemmta sér saman, fögnum frábæru tímabili allra deilda og lítum björtum augum til framtíðar.

Frekari upplýsingar og skráning kemur á heimasíðuna síðar þegar búið er að skipuleggja en þeir sem vilja taka þátt í skipulagningu eða eru með hugmyndir að skemmtiatriðum eða öðru geta haft samband við framkvæmdastjóra í síma 616-7412 eða senda póst á skautahöllina.