Árshátíð Skautafélagsins 2016: Skráning hafin

Nú er búið að opna fyrir skráningu á árshátíðina 2016. Allar deildir Skautafélagsins halda sameiginlega Árs- og uppskeruhátíð miðvikudaginn 23. mars (daginn fyrir skírdag) í Golfskálanum. Tímabilið í ár var stutt en árangurinn frábær og líklega sá besti í sögu félagsins. Það er því miklu að fagna og gaman að koma saman og rifja upp tímabilið sem er að baki og líta björtum augum til framtíðar.

Á hátíðina eru allir velkomnir fæddir árið 2003 eða fyrr og er tvískipt, yngri gestirnir verða með í borðhaldi, verðlaunaveitingum og annarri dagskrá til kl. 22.30, en 16 ára og eldri halda síðan áfram að skemmta sér og öðrum eftir það.

Veislustjóri: Rúnar Eff

Tónlist: Rúnar Eff og Elvar Jónsteinsson

Verð: 4.000 krónur á mann, en 2.500 fyrir yngri en 16 ára. 
Staður: Golfskálinn.
Veitingar: Veislumatur að hætti Helga Gunnlaugs en innifalið í verði eru drykkir þ.e.a.s gos og kaffi en frír bjór fyrir 20 ára og eldri eftir kl 22.30.
Tími: Húsið verður opnað kl. 19.30, en borðhald hefst um og upp úr kl. 20.15
Dagskrá: Matur, verðlaun og viðurkenningar, skemmtiatriði, dans.
Miðasala: Við innganginn, eingöngu tekið við peningum. 
Skráning: Á facebook - En ef þú ert ekki með boð á viðburðinn getur þú skrifað skilaboð á facebook síðu Skautafélagsins á Facebook eða sent póst í skautahollina@sasport.is

 

Ætlast er til að gestir yngri en 16 ára verði í fylgd með foreldri, forráðamanni eða öðrum umsjónaraðila (t.d. liðsstjórar eða foreldrar sem taka að sér að sjá um nokkra saman).