Ársmiðar og Stuðningamannakort nú fáanleg

Nú býðst SÖNNUM ÁHUGA OG STUÐNINGSMÖNNUM að kaupa Árskort á 8000 kr. Þau gilda á alla heimaleiki í Deildarkeppni Meistaraflokka Karla og Kvenna, en þeir eru 16 hjá körlunum en 10 kvennamegin. Annar valkostur eru STUÐNINGSMANNAKORTIN

 

sem kosta 12000 kr. en þau eru frábrugðin árskortunum að því leiti að þeim fylgir "VÖFFLUKAFFI" í fundarherbergi Skautahallarinnar í leikhléum. Kortin má nálgast hjá Reyni ( 660-4888 ) í Skautahöllinni og eins býðst iðkendum að selja þau gegn sölulaunum.

KOMA SVO allir stuðningsmenn og velunnarar. 

Kaupið ykkur frábæra skemmtun í vetur og styrkið um leið Hokkídeildina til enn öflugra starfs, því það þarf að hlúa vel að byrjendum og styttra komnum til að standa uppi með sterkt félag þegar fram líða stundir og ef við leggjum öll eitthvað af mörkum þá uppskerum við eins og við sáum.  (O: