Aseta-mót um helgina hjá meistaraflokki karla

Styrktaraðili mótsins er Aseta
Styrktaraðili mótsins er Aseta
Í kvöld hefst í Reykjavík Asetamótið fyrir meistaraflokk karla.  Þetta mót hefur verið haldið áður og þar hafa öll félögin tekið þátt og hefur þetta þótt ánægjuleg byrjun á tímabili fyrir leikmenn og upplögð leið til að ná úr sér sumar ryðinu.  Mótið verður þó ekki eins og til stóð þar sem Skautafélag Reykjavíkur ákvað að taka ekki þátt í mótinu af einhverjum óþekktum ástæðum.  Ákveðið var að láta ekki fjarveru þeirra hafa áhrif á mótið þar sem þegar var búið að skipuleggja það, kaupa verðlaunagripi og ráða dómara, heldur skella sér suður og spila tvo eða þrjá leiki við Björninn.

Það er gott fyrir liðið að ná þessum leikjum áður en tímabilið byrjar en það mun að öllu óbreyttu hefjast um næstu helgi.  Hópurinn er að slípast saman og menn hægt og rólega að komast í form fyrir veturinn.