Emilía Rós í 2. sæti á Hamar Trophy

Emilía Rós hafnaði í 2. sæti á Hamar Trophy
Emilía Rós hafnaði í 2. sæti á Hamar Trophy

Emilía Rós lauk langa prógramminu með  49,74 stig og samanlagt 77,32 stig það tryggði henni silfur í Advanced novice flokknum í dag. Marta María lauk langa prógramminu með 46,90 stig. Hún var þriðja hæst fyrir langa prógrammið. Samanlagt lauk hún keppni með 72,31 stig og hafnaði í 5. sæti. Pálína lauk langa prógramminu með 34,90 stig, samanlagt með 57,30 og hafnaði hún í 17. sæti.

Innilega til hamingju með árangurinn stelpur þið standið ykkur frábærlega og eruð svo sannarlega ykkur og félaginu ykkar til mikils sóma.

Ivana lauk stutta prógramminu í dag með 43,95 stig. Hún heldur svo áfram keppni á morgun með langa prógrammið.