Ert þú ekki örugglega félagsmaður í Skautafélagi Akureyrar?

Greiðsluseðlar félagsgjalda eru nú komnir í heimabanka félagsmanna og þeirra sem eru tengdir félaginu á einn eða annan hátt. Félagsgjaldið er kr. 3.500 kr. en við vonumst til þess að þú kæri félagsmaður greiðir félagsgjaldið sem birtist í heimabanka þínum og leggir okkur lið við uppbyggingu félagsins. Ef þú ert ekki félagsmaður í dag en vilt fá greiðsluseðilinn þarft þú aðeins að senda póst á skautahollin@sasport.is og sækja um aðild og þá færð þú sendan greiðsluseðil í heimabankann þinn. 

Félagar í Skautafélagi Akureyrar eru allir þeir sem iðka sína íþrótt í Skautafélaginu eða nýta aðstöðuna á einn eða annann hátt.  Einnig geta allir sem áhuga hafa á félaginu og starfsemi þess gerst félagsmenn með greiðslu félagsgjalds. Félagsgjöld eru ekki innifalin í æfingargjöldum. Félagsgjöld renna í sjóð hjá Skautafélaginu sem notaður er í að byggja upp innviði félagsins, bæta aðstöðu fyrir félagsmenn og halda í heiðri sögu félagsins.  Fjárfestingar úr félagssjóði hin síðari ár hafa m.a. verið húsgögn í félagsherbergi og tækjabúnaður s.s. sjónvarp og skilti á veggjum skautahallarinnar með myndum úr sögu félagsins. Þá hefur sjóðurinn keypt allan upptökubúnað og tækjabúnaði sem sýnir frá viðburðum á vegum félagsins ásamt gagnageymslu sem hýsir myndskeiðin og varðveitir sögu félagsins. 

Nýjasta fjárfesting sjóðsins er ný heimasíða félagsins sem er í vinnslu og verður tekin í notkun á næstu mánuðum. Félagsgjöldin sem nú eru til greiðslu eru afskaplega mikilvæg fyrir þennan sjóð félagsins til að styðja við næsta verkefni sem verður að fullbúa nýja félags- og æfingaraðstöðu sem tekin verður í notkun á næsta ári. Markmið félagsins er að aðstaðan verði fullbúin að öllu leyti þegar hún verður tekin í notkun og þá er mikilvægt að sem flestir hafi greitt félagsgjaldið.

Ef þú hefur fengið fleiri en einn greiðsluseðil í heimabankann þinn, hefur ekki áhuga á að vera félagi eða hefur bara hreinlega ekki tök á að greiða upphæðina þá þarftu ekkert að aðhafast því engir vextir leggjast á kröfuna og hún hverfur úr heimabankanum þann 10. janúar.