Foreldrafundur hjá foreldrum í byrjendahópum

Mánudaginn 5. október kl. 18:15 verður haldinn foreldrafundur fyrir foreldra barna i byrjendahópum. Krakkarnir eru velkomnir með á fundinn.
Kristín Helga þjálfari verður með innlegg um skautaíþróttina og það sem henni tilheyrir. Farið verður yfir þætti eins og fatnað, að reima skautana, mætingar ofl.
Fulltrúi stjórnar kynnir listhlaupadeildina og hvað er framundan í vetur.