Frábær árangur hjá Ísold Fönn á Skate Helena í Serbíu í dag

Ísold Fönn náði frábærum árangri í sínum flokki á Skate Helena í Serbíu í dag. Í flokknum hennar Ísoldar voru 32 keppendur frá löndum víða í Evrópu og gerði Ísold Fönn sér lítið fyrir og hreppti silfursætið með 29.46 stig.

Til hamingju með frábæran árangur Ísold Fönn.

Á morgun er svo röðin komin að Rebekku Rós og hefst keppni í hennar flokki rétt fyrir klukkan 12 á morgun fimmtudag. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá mótinu hérna.