Frábær leikur í dag og fjórða sætið

Mynd: Elvar Freyr Pálsson
Mynd: Elvar Freyr Pálsson


Íslenska kvennalandsliðið í íshokkí vann það belgíska í framlengdum leik í dag, 2-1. Með sigrinum tóku stelpurnar fjórða sætið af Belgum.

Katrín Ryan skoraði fyrsta mark leiksins alveg í lokin á fyrsta leikhluta með stoðsendingu frá Birnu Baldursdóttur. Annar leikhluti var markalaus, en þær belgísku jöfnuðu leikinn þegar um ellefu mínútur voru eftir. Þannig var staðan þegar þriðja leikhluta lauk og því var framlengt. Eftir aðeins um eina og hálfa mínútu í framlengingunni skoraði Anna Sonja Ágústsdóttir gullmarkið með stoðsendingu frá Hrund Thorlacius.

Tölurnar benda til þess að leikurinn hafi verið hnífjafn í dag, nánast jafnmörg skot á mark beggja liðanna og refsimínútur álíka margar.

Stelpurnar áttu frábæran leik í dag og náðu fjórða sætinu með þessum tveimur stigum í dag. Þær enduðu með 5 stig, eins og Belgar, en raðast ofar, væntanlega vegna þessa sigurs í framlengingunni í viðureign þessara liða í dag.

Mörk/stoðsendingar
Katrín Ryan 1/0
Anna Sonja Ágústsdóttir 1/0
Birna Baldursdóttir 0/1
Hrund Thorlacius 0/1
Refsingar: 10 mínútur
Varin skot: 24

Leikskýrslan og úrslit og staðan á vef mótshaldara.