Fréttir frá Norðurlandamótinu í Listhlaupi

Stúlkurnar héldu af stað til Linköping að morgni dags þann 6. febrúar ásamt 6 stúlkum frá Fjölni og SR. Við komu til Linköping hófust æfingar og áttu stelpurnar allar æfingu á miðvikudeginum. Á fimmtudeginum hófst keppni með stutta prógrammið bæði hjá Advanced Novice og Junior flokkunum. Júlía Rós var fyrst stúlknanna þriggja til að hefja keppni, en hún er í flokknum Advanced Novice. Júlía Rós skilaði mjög fallegu prógrammi sem skilaði henni 25.15 stigum og var hún önnur af íslensku stúlkunum og 18. í heildina að loknum skilduæfingum.

Keppni í Junior flokknum hófst að lokinni opnunarhátíð á miðvikudagskvöldið. Ásdís Arna Fen var fyrri til að fara inn á ísinn og var hún þriðja í þriðja upphitunarhóp. Hún skilaði vel skautuðu prógrammi, þrátt fyrir fall í 2 Axel. Hún fékk full level á 2 spinna, spor á level 2. sem skilaði henni 30.29 stigum, önnur af íslensku skauturunum og 17. sæti í heildina. Þá var röðin komin að Aldísi sem skautaði síðust íslensku skautaranna, en hún skautaði önnur í síðasta upphitunarhóp. Aldís skilaði mjög fallegu prógrammi lenti 2 Axelnum á plúsum, fékk 1 spinn á fullum levelum og hina á level 2 og 3 og spor á level 2. Þetta skilaði henni 36,66 stigum, 13. sæti í heildina og stóð hún efst íslensku skautaranna fyrir frjálsa prógrammið. 

Á föstudaginn keppti Júlía Rós með frjálsa prógrammið, en Juniorarnir fengu frídag. Júlía skilaði mjög fallegu prógrammi, og fékk hún fyrir það 43,45 stig eða samanlagt 68,60 stig. Það fleytti Júlíu upp um 2 sæti og hafnaði hún í 16. sæti, efst íslensku skautaranna.

Á föstudagskvöldið var skauturunum, þjálfurum, auk dómurum og tæknifólki boðið í opinberan kvöldverð í flugsafninu í Linköping. Þetta var hin besta skemmtun.

Á laugardaginn var svo komið að keppni með frjálst prógram hjá Juniorunum. Ásdís var þriðja inn á ísinn í fyrsta upphitunarhóp. Hún skilaði vel skautuðu fjálsu prógrammi. Fékk 2 spinna á level 3 og einn á level 2. Flest stökkin hennar voru á plúsum. Fyrir þetta fékk hún 55.39 stig. Hún hlaut samanlagt 85,68 stig og skilaði það henni 17. sæti. Aldís var síðust íslensku skautaranna til að skauta í Junior flokknum. Hún skautaði þriðja í öðrum upphitunarhóp. Aldís skilaði vel skautuðu prógrammi, var með 2 tvöfalda Axela í prógramminu og annan þeirra í samsetningu, reyndi við 3 salcow, sem var reyndar vansnúið. Einnig fékk hún full level á 1 spinn og level þrjú á tvo spinna og spor. Þetta skilaði henni 66,86 stigum. Aldís hlaut samanlagt 103,52 stig, sem er hæsta einkunn sem Íslendingur hefur fengið á Norðurlandamóti, og skilaði það henni í 12. sæti. 

Við óskum stelpunum innilega til hamingju með árangurinn.