Gelpúðar:

Verslunin Everest hefur til sölu gelpúða og ökklahlífar frá Bungapads.
Bungapads hefur slegið í gegn hjá listskauturum og öðru íþróttafólki. Hlífarnar eru mjög góðar til að verja ökklana og púðarnir henta vel fyrir þær sem eru með aukabein eða beinhimnubólgu.  Gelpúðarnir eru einnig mjög góðir til að minnka hættuna á nuddsárum.  Margar gerðir fáanlegar og Íris Kara skautakona veitir faglega ráðgjöf varðandi val á púðum og hlífum. Iðkendur Skautafélags Akureyrar fá 10% afslátt.